top of page

54 þúsund bækur lesnar!

Búið er að draga lestrarátaki Ævars vísindamanns, sem stóð frá 1. janúar-1. mars. Eftir talningu á innsendum lestrarmiðum kom í ljós að um 54 þúsund bækur voru lesnar í átakinu, en allir krakkar í 1.-7. bekk máttu taka þátt. Þátttakan var framar öllum vonum, en stærstur hluti gunnskóla landsins sendi inn lestrarmiða, sem og Gladsaxeskóli í Danmörku, en þar stunda íslenskir krakkar nám. Krakkarnir sem dregnir voru úr lestrarátakspottinum eru í Grunnskólanum í Sandgerði, Laugarnesskóla, Hörðuvallaskóla, Árskóla Sauðárkróki og Hríseyjarskóla. Þau fá það í verðlaun að vera gerð að persónum í stórhættulegri ævintýrabók, Bernskubrek Ævars vísindamanns: Vélmennaárásin, sem kemur út í apríl. Í fyrra voru rúmlega 60 þúsund bækur lesnar á fjórum mánuðum í sama átaki , sem þýðir að tæpar 115 þúsund bækur hafa nú verið lesnar í lestrarátökum Ævars. Takk fyrir mig - þetta er algjörlega frábært!


Nýlegt
bottom of page