top of page

Ævar og Sinfó


Ævar vísindamaður hefur um árabil kynnt töfra tækni og vísinda fyrir ungmennum á öllum aldri og nú kemur hann fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í sannkölluðum sinfónískum vísindatrylli. Á tónleikunum kynnir Ævar til leiks ýmsar af merkari uppgötvunum mannsandans í samhljómi við Sinfóníuhljómsveitina og Sprengju-Kötu sem verður sérstakur gestur á tónleikunum. Glæsileg tónlist og myndbrot spanna tækniframfarir allt frá upphafi til framtíðar í spennandi ferðalagi undir leiðsögn Ævars vísindamanns. Á tvennum tónleikum hljómar tónlist eftir verðlaunatónskáld og stjarnfræðilega vinsæl tónskáld, Íslandsvini og kvikmyndajöfra. Meðal annars má heyra tóna úr himingeimnum, tölvuleikjum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, ævintýraþrá mannsins er í forgrunni og spennandi kraftar koma við sögu. Það er nú þegar uppselt á fyrstu tónleikana - við bættum þess vegna við aukatónleikum sama dag. Ýttu hér til að panta miða!


Nýlegt
bottom of page