top of page

HINSTA LESTRARÁTAK ÆVARS VÍSINDAMANNS

 1. JANÚAR - 1. MARS 2019

REGLURNAR:

HVER ERTU?

NEMANDI Í 1.-10. BEKK:

  1. Lestu það sem þig langar til að lesa.

  2. Þú mátt lesa hvaða bók sem er.

  3. Á hvaða tungumáli sem er.

  4. Hljóðbækur, eða ef einhver les fyrir þig, teljast líka með sem lesin bók.

 

Fyrir hverjar þrjár bækur sem þú lest fyllir þú út lestrarmiða sem má annað hvort prenta út hér eða á næsta skólabókasafni og skilur svo eftir á næsta skólabókasafni. Ef skólinn þinn er ekki að taka þátt getur þú tekið þátt sjálf/ur og sent miðana til Heimilis og skóla í lok átaksins. 

Því meira sem þú lest - því fleiri miða áttu í pottinum.

 

Fimm krakkar verða dregnir úr lestrarmiðapottinum og gerðir að persónum í síðustu bókinni um Bernskubrek Ævars vísindamanns. Takið líka eftir þessum tveimur nýju reglum:

  1. Sá skóli sem les hlutfallslega mest verður settur í bókina. Þegar átakinu lýkur bið ég þá skóla sem taka þátt að láta fylgja með lestrarmiðasendingunni skrá yfir fjölda miða frá skólanum ásamt nemendafjölda skólans.

  2. Ég mun draga einn nemenda úr hverjum einasta skóla sem tekur þátt og mun hann eða hún fá sérstaka bókagjöf frá mér. Þetta þýðir að það verður allavega einn sigurvegari í hverjum einasta skóla.

GÓÐA SKEMMTUN!

FORELDRI EÐA FORRÁÐAMAÐUR:

  1. Lestu það sem þig langar til að lesa.

  2. Þú mátt lesa hvaða bók sem er.

  3. Á hvaða tungumáli sem er.

  4. Hljóðbækur, eða ef einhver les fyrir þig, teljast líka með sem lesin bók.

 

Fyrir hverjar þrjár bækur sem þú lest fyllir þú út lestrarmiða finna má hér. Miðunum má skila með lestrarmiðum krakka inn á næsta skólabókasafn, en einnig er hægt að senda miðana í lok átaksins til Heimilis og Skóla, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Því meira sem þú lest - því fleiri miða áttu í pottinum. Eitt foreldri verður dregið úr lestrarmiðapottinum og gert að persónu í síðustu bókinni um Bernskubrek Ævars vísindamanns. 

Takið eftir því að ömmur og afar eru að sjálfsögðu foreldrar líka og geta þess vegna tekið þátt.

GÓÐA SKEMMTUN!

ÍSLENDINGUR ERLENDIS:

Allir íslenskir krakkar - og foreldrar - sem búa erlendis geta að sjálfsögðu tekið þátt og þá eru reglurnar þær sömu og fyrir krakka í íslenskum grunnskólum:

  1. Lestu það sem þig langar til að lesa.

  2. Þú mátt lesa hvaða bók sem er.

  3. Á hvaða tungumáli sem er.

  4. Hljóðbækur, eða ef einhver les fyrir þig, teljast líka með sem lesin bók.

 

Fyrir hverjar þrjár bækur sem þú lest fyllir þú út lestrarmiða sem má prenta út hér og sendir til Heimilis og skóla, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík í lok átaksins. Ég mæli með því að vera snemma í því að senda miðana svo þeir berist í tæka tíð.

Því meira sem þú lest - því fleiri miða áttu í pottinum.

​GÓÐA SKEMMTUN!

Anchor 1
Anchor 2
Anchor 3
Lesatak3.jpg
Lesatak2.jpg
Lesatak4.jpg
Lesatak1.jpg

ÝTTU HÉR TIL AÐ HLAÐA NIÐUR VEGGSPJÖLDUNUM

​Átakið var styrkt af:​
Banner_5.jpg

Kæru vinir.

Síðasta lestrarátakinu mínu er lokið. Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur fyrir að taka þátt í ár, og til ykkar sem hafið verið með frá fyrsta ári vil ég senda stafrænt knús.

Lestrarmiðarnir, eins og venjulega, verða sendir til Heimilis og skóla, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Takið eftir því að Heimili og skói borga ekki sendingarkostnaðinn.

Til að allir miðar verði örugglega komnir í hús munum við ekki draga fyrr en 20. mars klukkan 15:30. Hátíðleg athöfn verður haldin í Borgarbókasafninu, Grófinni við Tryggvagötu, þar sem bæði forseti Íslands og mennta- og menningarmálaráðherra munu draga nöfn sigurvegaranna úr lestrarátakspottinum. Allir eru velkomnir og verður athöfninni streymt í gegnum facebook-síðu Ævars vísindamanns, facebook.com/visindamadur.

Ef þið hafið áhuga á að mæta með krakka úr skólanum ykkar á athöfnina skuluði senda póst á ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is og hún mun skrá ykkur niður. Þar gildir reglan ,,fyrstir koma - fyrstir fá", þannig að ekki bíða of lengi með að heyra í henni.

Ég þarf að biðja ykkur um einn greiða að lokum; sá skóli sem las hlutfallslega mest verður settur í verðlaunabókina og því þarf ég að biðja ykkur um að telja fjölda miða sem þið sendið inn (hér teljast foreldramiðarnir ekki með, bara miðar frá nemendum) auk þess sem þið látið fylgja með fjölda nemenda í skólanum ykkar.

Þá megiði endilega aðskilja nemenda- og foreldramiðana ef þið nennið. :)

Takk aftur fyrir mig. Þetta hafa verið afar lærdómsrík fimm ár og aldrei að vita nema ég láti mér detta eitthvað skemmtilegt og spennandi í hug til að trufla ykkur með að ári. :)

Með vinsemd og virðingu.

-Ævar

bottom of page