top of page

LESTRARÁTAK ÆVARS VÍSINDAMANNS III

 SKÓLAÁRIÐ 2016 - 2017

ÁTAKINU ER LOKIÐ.

YFIR 63 ÞÚSUND BÆKUR VORU LESNAR!

 

---

Reglurnar eru þessar:

 

1. Það má lesa hvaða bók sem er.

2. Á hvaða tungumáli sem er.

3. Hljóðbækur og ef einhver les fyrir þig telst með.

4. Allir krakkar í 1. - 7. bekk mega taka þátt.

Fyrir hverjar þrjár bækur sem þið lesið prentið þið út lestrarmiða, fyllið út og skilið á næsta skólabókasafn, sem mun svo koma þeim til skila.

Ef einhverjir eru að taka þátt utan skóla (eins og t.d. krakkar sem búa í útlöndum) er hægt að senda lestrarmiðana á:

Heimili og skóli, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Í byrjun mars verður dregið úr öllum innsendum lestrarmiðum og fá fimm krakkar í verðlaun að vera persónur í æsispennandi geimverubók eftir Ævar vísindamann, Gestir utan úr geimnum, sem kemur út í apríl.

Í síðustu tveimur átökum voru lesnar meira en 114 þúsund bækur. Það verður einstaklega spennandi að sjá hvernig okkur gengur í ár.

Áfram lestur!

ÝTTU HÉR TIL AÐ HLAÐA NIÐUR

LESTRARMIÐUNUM

Og ýttu á litlu myndina
 til að hlaða niður plakötunum.




 

Eftirtaldir aðilar hjálpuðu átakinu að verða að veruleika:

bottom of page