

ÆVAR VÍSINDAMAÐUR







UPPLÝSINGAR UM
LESTRARÁTAK ÆVARS VÍSINDAMANNS II
SKÓLAÁRIÐ 2015 - 2016
Búið er að draga í lestrarátaki Ævars vísindamanns, sem stóð frá 1. janúar-1. mars.
Eftir talningu á innsendum lestrarmiðum kom í ljós að um 54 þúsund bækur voru lesnar í átakinu, en allir krakkar í 1.-7. bekk máttu taka þátt. Þátttakan var framar öllum vonum, stærstur hluti gunnskóla landsins sendi inn lestrarmiða, sem og Gladsaxeskóli í Danmörku, en þar stunda íslenskir krakkar nám.
Krakkarnir sem dregnir voru úr lestrarátakspottinum eru í Grunnskólanum í Sandgerði, Laugarnesskóla, Hörðuvallaskóla, Árskóla Sauðárkróki og Hríseyjarskóla. Þau fá það í verðlaun að vera gerð að persónum í stórhættulegri ævintýrabók, Bernskubrek Ævars vísindamanns: Vélmennaárásin, sem kemur út í apríl.
Í fyrra voru rúmlega 60 þúsund bækur lesnar á fjórum mánuðum í sama átaki , sem þýðir að tæpar 115 þúsund bækur hafa nú verið lesnar í lestrarátökum Ævars.
Takk fyrir þessa frábæru þátttöku!
Ævar mun endurtaka leikinn á næsta skólaári.

Langar þig að prenta nýju veggspjöldin út?
Ýttu á litlu myndirnar til að ná í þau.
